Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
banner
   fös 10. apríl 2026 09:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Umfjöllun
Líkleg byrjunarlið í opnunarleiknum - Gylfi með, þrír um tvær stöður og hver verður fremstur?
Er Gylfi klár eða ekki?
Er Gylfi klár eða ekki?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ágúst Orri Þorsteinsson spilaði vel í Evrópuleikjum síðasta haust.
Ágúst Orri Þorsteinsson spilaði vel í Evrópuleikjum síðasta haust.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nikolaj Hansen eða Elías í liðinu?
Nikolaj Hansen eða Elías í liðinu?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Örn eða Ásgeir Helgi?
Viktor Örn eða Ásgeir Helgi?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Við spáum því að Viktor Karl komi inn í lið Breiðabliks
Við spáum því að Viktor Karl komi inn í lið Breiðabliks
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 19:15 flautar Vilhjálmur Alvar Þórarinsson Bestu deildina af stað á Víkingsvelli hvar ríkjandi Íslandsmeistarar í Víkingi taka á móti Breiðabliki sem varð Íslandsmeistari 2024.

Nokkur spurningarmerki eru fyrir leikinn varðandi hverjir verða í byrjunarliðunum.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 0 -  0 Breiðablik

Víkingur
Byrjum á heimamönnum, þar eru stærstu spurningarmerkin hvort að Gylfi Þór Sigurðsson verði með og hvort þjálfarinn, Sölvi Geir Ottesen, skipti um fremsta mann.

Við spáum því að markahæsti landsliðsmaður sögunnar, Gylfi Þór, verði til taks og byrji leikinn í kvöld. Elías Már Ómarsson skoraði gegn Fram í Mjólkurbikarnum en við spáum því að Nikolaj Hansen komi inn í liðið í hans stað. Annað verður að öllum líkindum hefðbundið.

En hvað ef Gylfi er ekki klár? Þá eru þeir Viktor Örlygur Andrason og Jóhannes Kristinn Bjarnason líklegir kostir inn á miðsvæðið. Svona er því líklegt byrjunarlið Víkings.



Breiðablik
Gestirnir mættu lakari andstæðingi í bikarnum um síðustu helgi, Kormáki/Hvöt, og Ágúst Orri Þorsteinsson byrjaði á bekknum eftir að hafa komið úr landsliðsverkefni. Við spáum því að hann komi inn í liðið fyrir Jónatan Guðna Arnarsson og að Ágúst verði með þeim Óla Val Ómarssyni og Kristófer Inga Kristinssyni í fremstu línu. Aron Bjarnason var ekki í hópnum í bikarnum og spurning hvernig staðan á honum er.

Höskuldur Gunnlaugsson verður á miðjunni og við spáum því að með honum verið reynsluboltinn Andri Rafn Yeoman og Viktor Karl Einarsson komi inn fyrir Kristin Steindórsson. Arnór Gauti Jónsson gerir tilkall í liðið ef Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, vill fleiri varnarsinnaða leikmenn.

Stóra spurning er svo hvaða tveir miðverðir verða í liðinu ef gengið er út frá því að Blikar verði með fjögurra manna línu. Þeir Ívar Örn Árnason og Ásgeir Helgi Orrason byrjuðu í bikarnum en við búumst við því að reynslumeiri kostur, Viktor Örn Margeirsson, komi inn í stað Ásgeirs og spili við hlið Ívars.



Það verður spennandi að fylgjast með því 18:15, þegar liðin verða opinberuð, hvort að Gylfi verði í liði Víkings, hverjir verða í varnarlínu Breiðabliks og hvort eitthvað annað muni koma á óvart.
Slapp
banner