Landsliðsmaðurinn Kristian Nökkvi Hlynsson skoraði sitt níunda deildarmark á tímabilinu er Twente vann 2-1 sigur á Volendam í hollensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Kristian hefur verið sjóðandi heitur síðustu mánuði en hann var að skora sjötta deildarmark sitt á tæpum tveimur mánuðum.
Hann gerði annað mark Twente í leiknum er hann fékk sendingu inn fyrir hægra megin í teignum og lagði boltann snyrtilega niðri í fjærhornið.
Þetta mark reyndist dýrmætt og heldur Twente inn í baráttunni um Meistaradeildarsæti, en liðið er í 4. sæti með 53 stig, einu stigi frá Feyenoord sem er í öðru sæti.
Sjáðu markið hjá Kristian Nökkva
Valgeir Lunddal Friðriksson kom inn af bekknum hjá Düsseldorf sem tapaði fyrir Holsten Kiel, 2-1, í þýsku B-deildinni. Hann lék síðasta hálftímann en Düsseldorf er í 13. sæti með 31 stig.
Nóel Atli Arnórsson og félagar hans í Álaborg unnu annan leikinn í röð í fallriðli B-deildarinnar. Hann kom inn af bekknum í síðari hálfleik og hjálpaði sínum mönnum að landa sigrinum gegn Hobro, en Álaborg er í efsta sæti riðilsins með 34 stig á meðan Hobro er í öðru sæti með 28 stig.


