Fotbolti.net
10.04.26 - 09:00
Elvar Geir Magnússon

Slot segist finna stuðning eigenda og stuðningsmanna

Arne Slot, stjóri Liverpool.

Arne Slot, stjóri Liverpool.

Canon

Mynd: EPA

„Ég er mikið að endurtaka mig en ég finn mikinn stuðning. Ekki bara frá eigendunum heldur líka frá Richard Hughes og Michael Edwards (yfirmönnum fótboltamála) og eins furðulega og það gæti hljómað finn ég líka stuðning frá stuðningsmönnum," segir Arne Slot, stjóri Liverpool.

Pressan á Slot jókst enn frekar í vikunni þegar liðið tapaði 2-0 í fyrri leiknum gegn Paris Saint-Germain, eftir að hafa fengið skell gegn Manchester City í bikarnum síðasta laugardag. Liverpool fær Fulham í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni á morgun en þar er liðið í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti.

„Þegar við fórum út á völlinn í upphitun í París voru stuðningsmennirnir að syngja 'Við elskum Liverpool'. Það er sanngjarnt að segja að við höfum verið yfirspilaðir allan leikinn og þeir voru enn að syngja og klappa fyrir okkur. Félagið veit á hvaða stað við erum og ég finn stuðning."
England um helgina - Fallbaráttuslagur í London
TENGT EFNI

England um helgina - Fallbaráttuslagur í London

Slot sat fyrir svörum á fréttamannafundi núna í morgunsárið en hann greindi meðal annars frá því að brasilíski markvörðurinn Alisson yrði ekki klár í slaginn fyrir morgundaginn. Þá er óvissa vegna leikjaálags um Jeremie Frimpong og Joe Gomez sem voru að stíga upp úr meiðslum og ekki víst að þeir séu klárir í að spila svona stuttu eftir leikinn í París.
Alisson verður ekki með á morgun.

Alisson verður ekki með á morgun.

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.