10.05.17 - 12:13
Magnús Már Einarsson
Breiðablik hefur ekki hafið viðræður við þjálfara

Úr leik Breiðabliks og Fjölnis í fyrrakvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úlfar Hinriksson stýrði æfingu Blika í gærkvöldi.

Breiðablik hefur ekki hafið viðræður við neinn þjálfara ennþá um að taka við liðinu eftir að Arnar Grétarsson var rekinn í gær.
„Þegar við byrjuðum þetta ferli var tekin ákvörðun um að það yrði ekki talað við neinn af virðingu við Adda og hópinn. Við vildum ekki fara á bakvið neinn með því að undirstinga einhvern. Við höfum ekki talað við neinn ennþá. Við ætlum að hittast á eftir og byrja að skipuleggja það hvernig við ætlum að gera þetta,\" sagði Ólafur Hrafn Ólafsson formaður knattspyrnudeildar við Fótbolta.net í dag.
Orðrómur hefur verið um að Breiðablik ætli að leita erlendis eftir nýjum þjálfara. Kemur það til greina? „Alveg eins. Það hafa ekki verið tekið neinar ákvarðanir. Það er ekkert útilokað. Það er allt opið í því.\"
Breiðablik hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í Pepsi-deildinni í sumar. „Stjórn knattspyrnudeildar telur að þessi ákvörðun sé óhjákvæmleg í ljósi árangurs liðsins undanfarið misseri,\" sagði í yfirlýsingu félagsins í gær.
Ólafur vill ekki tjá sig meira um ástæður fyrir brottrekstri Arnars. Hann skilur hins vegar þá sem hafa gagnrýnt ákvörðunina.
„Ég skil það af hluta til. Þetta er ekki auðveld ákvörðun að taka. Arnar er búinn að gera margt gott fyrir félagið og maður skilur öll sjónarmið,\" sagði Ólafur.
Næsti leikur Breiðabliks er gegn Stjörnunni á sunnudag. Verður nýr þjálfari kominn í brúna þá? „Við ætlum að gera þetta vel. Ef það þýðir að við þurfum að taka okkur tíma í það þá gerum við það,\" sagði Ólafur.
Úlfar Hinriksson, yngri flokka þjálfari hjá Breiðabliki, stýrði æfingu hjá meistaraflokki karla í gærkvöldi. Frí er á æfingu í kvöld samkvæmt plani og ekki er búið að ákveða frekari skref að sögn Ólafs.
Sjá einnig:
Arnar Grétars rekinn frá Breiðabliki (Staðfest)
Arnar Grétars: Þetta kom mér á óvart
Twitter um Adda Grétars: Grín ársins er komið
Tekur erlendur þjálfari við Breiðabliki?