Fotbolti.net
10.05.17 - 18:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Eric Kwakwa í Víking Ó. (Staðfest)

Nóg að gera á skrifstofu Ólsara

Eric Kwakwa.

Eric Kwakwa.

Canon

Mynd: Víkingur Ó.

Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvík hefur gengið frá samningum við annan leikmanninn í dag.

Félagið hefur samið við Eric Kwakwa um að leika með liðinu í sumar. Hann kemur frá Gana.

Eric, sem er fæddur árið 1994, kemur til liðsins á lánssamningi sem gildir út sumarið.
Hann hefur undanfarið leikið með Mediama SC í heimalandinu.

Hann spilar stöðu varnarsinnaðs miðjumanns.

„Við bjóðum Eric velkominn til Ólafsvíkur,\" segir í fréttatilkynningu frá Víkingum.

Hann er eins og áður segir annar leikmaðurinn sem Ólsarar semja við í dag, en nú áðan var sagt frá því að Kwame Quee væri kominn til liðsins.

Hann er landsliðsmaður frá Sierra Leone og kemur einnig á lánssamningi sem gildir út sumarið.

Ólsarar eru án stiga eftir fyrstu tvo leiki Pepsi-deildarinnar þetta sumarið. Þeir hafa mætt Val og KR, en í síðustu umferð töpuðu þeir naumlega gegn KR þar sem flautumark var skorað.

Næsti leikur Víkinga er á sunnudaginn gegn Grindavík á útivelli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.