10.05.17 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Jörundur Áki um brottrekstur Arnars: Þetta er helvíti hart

Arnar Grétarsson var rekinn í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jörundur Áki Sveinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Grétarsson var rekinn í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er óvanalegt að þetta sé gert svona snemma. Það eru bara tveir leikir búnir og manni finnst þetta vera helvíti hart,\" segir Jörundur Áki Sveinsson, sérfræðingur Fótbolta.net, um tíðindi gærdagsins en Arnar Grétarsson var þá rekinn frá Breiðabliki eftir einungis tvo leiki í Pepsi-deildinni.
„Liðinu var ekki búið að ganga vel en sjálfsagt hefur þetta ekki verið auðveld ákvörðun fyrir þá. Addi er mikill Bliki og kemur af Blikafólki. Stundum er þetta gert og vonandi verður þetta þeim til heilla.\"
Breiðablik hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í Pepsi-deildinni í sumar. „Stjórn knattspyrnudeildar telur að þessi ákvörðun sé óhjákvæmleg í ljósi árangurs liðsins undanfarið misseri,\" sagði í yfirlýsingu félagsins í gær.
Er ástæðan fyrir brottrekstrinum þessir tveir tapleikir eða býr eitthvað meira að baki? „Það eru alls konar kjaftasögur í gangi en ég stórefast um það. Ég held að þetta snúist um að liðið var ekki að safna stigum og þar af leiðandi hafi þeir ákveðið að láta hann fara. Það kemur samt á óvart að þeir geri þetta og hafi ekki annan þjálfara kláran í staðinn.\"
Breiðablik tapaði 1-0 gegn Fjölni í fyrrakvöld eftir að hafa tapað 3-1 gegn KA í fyrstu umferðinni.
„Mér fannst þeir búnir að vera mjög slakir. Fyrsti leikurinn var mjög dapur. Þeir voru á heimavelli gegn nýliðum í deildinni sem komu brjálaðir til leiks. Mér fannst andleysið vera algjört hjá Blikum. Mér fannst líkamstjáning leikmanna og þeirra sem stjórna liðinu vera þess eðlis að það væri ekki mikið í gangi. Þeir voru skömminni skárri gegn Fjölni og manni fannst þetta vera á uppleið en þá er þjálfarinn rekinn.\"
„Ég veit ekki hvað þeir sem stjórna þessu eru að hugsa en það verður mjög fróðlegt og skemmtilegt að fylgjast með því hver tekur við og hvort hann nái að rífa þetta upp. Breiðablik er stór klúbbur með með marga efnilega og góða leikmenn. Það verður skemmtilegt að fylgjast með framvindu mála í þjálfararáðningu,\" sagði Arnar.
Sjá einnig:
Arnar Grétars rekinn frá Breiðabliki (Staðfest)
Arnar Grétars: Þetta kom mér á óvart
Twitter um Adda Grétars: Grín ársins er komið
Tekur erlendur þjálfari við Breiðabliki?
Breiðablik hefur ekki hafið viðræður við þjálfara
Innkastið - Fyrsta stígvélið kom snemma í Kópavogi