Fotbolti.net
10.05.17 - 16:41
Magnús Már Einarsson

Leiknir F. fær framherja frá Getafe (Staðfest)

Leiknir F. fær framherja frá Getafe (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða Leiknis F. - Jón Þ.

Leiknir Fáskrúðsfirði hefur fengið spænska framherjann Pepelu Vidal í sínar raðir.

Hinn 21 árs gamli Pepelu kemur frá spænska B-deildarliðinu Getafe en hann lék með varaliðinu þar.
Vidal ólst upp hjá Real Betis og 18 ára gamall kom hann inn á sem varamaður í leik gegn Lyon í Evrópudeildinni.

Vidal náði ekki að festa sig í sessi í aðalliðinu og eftir dvöl hjá Recreativo Huelvao og Club Atlético Antoniano þá fór hann til Getafe síðastliðið sumar.

Leiknir F. gerði 2-2 jafntefli við Gróttu í fyrstu umferð Inkasso-deildarinnar um síðustu helgi en liðið mætir Keflavík í 2. umferðinni á laugardaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.