10.05.17 - 09:55
Magnús Már Einarsson
Tekur erlendur þjálfari við Breiðabliki?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik er í þjálfaraleit eftir að Arnar Grétarsson var rekinn frá félaginu í gær.
Háværar sögusagnir eru um að næsti þjálfari Breiðabliks komi erlendis frá. Ekkert hefur þó verið staðfest í þeim efnum ennþá.
Kristján Óli Sigurðsson, fyrrum leikmaður Breiðabliks, sagði á Twitter í gærkvöldi að Allan Kuhn, fyrrum þjálfari Malmö, verði næsti þjálfari Blika.
Kuhn gerði Malmö að sænskum meisturum á síðasta tímabili og um risa fréttir væri að ræða ef hann kæmi í íslenska boltann.

Nokkrir íslenskir þjálfarar hafa einnig verið orðaðir við stöðuna en þar á meðal eru Arnar Bill Gunnarsson, Bjarni Jóhannsson, Freyr Alexandersson, Logi Ólafsson og Pétur Pétursson.
Næsti leikur Breiðabliks er gegn Stjörnunni á heimavelli á sunnudagskvöld.
Sjá einnig:
Arnar Grétars rekinn frá Breiðabliki (Staðfest)
Arnar Grétars: Þetta kom mér á óvart
Twitter um Adda Grétars: Grín ársins er komið