10.05.17 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Victor rekinn frá Real Betis (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Real Betis er búið að reka Victor Sanchez sem þjálfara eftir þrjá tapleiki í röð.
Tapleikjahrinan byrjaði gegn Athletic Bilbao en það sem fyllti mælinn var þegar nýliðar Alaves og Leganes gjörsamlega völtuðu yfir Betis 4-1 og 4-0.

Í kjölfarið er Betis í 15. sæti deildarinnar, sem eigendum félagsins finnst vera óviðunandi árangur.
Félagið er þó ekki í fallhættu, enda 10 stigum fyrir ofan fallsæti þegar aðeins tvær umferðir eru eftir.
Victor, sem er aðeins 41 árs gamall, lék 65 leiki fyrir Real Madrid fyrir 20 árum og hefur þjálfað Deportivo La Coruna og Olympiakos undanfarin ár.