Fotbolti.net
10.05.18 - 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Björn Axel til liðs við Gróttu (Staðfest)

Björn Axel hefur áður leikið með Gróttu.

Björn Axel hefur áður leikið með Gróttu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grótta hefur fengið öflugan liðsstyrk fyrir sumarið í 2. deild karla; sóknarmaðurinn Björn Axel Guðjónsson er búinn að semja.

Björn Axel þekkir ágætlega til hjá Gróttu eftir að hafa leikið með liðinu 1. deild karla sumarið 2015.

Hann spilaði síðast með Njarðvík hér á landi en hefur að undanförnu verið í námi í Bandaríkjunum.

Björn mun væntanlega reynast öflugur liðsstyrkur þar sem hann hefur áður sýnt það að hann getur skorað í 2. deildinni. Sumarið 2014 lék hann þar með Njarðvík og skoraði 12 mörk í 17 leikjum.

Gróttumenn vonast vitanlega til þess að hann geri svipað í sumar.
Björn Axel, sem er 23 ára gamall, er löglegur í næsta leik Gróttu í 2. deildinni. Sá leikur er gegn Þrótti Vogum á morgun. Grótta hóf leik í 2. deildinni með 5-2 sigri á Tindastóli.

Sjá einnig:
Spá fyrirliða og þjálfara í 2. deild: 1. sæti
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.