Fotbolti.net
10.05.18 - 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ian Holloway rekinn frá QPR (Staðfest)

Steve McClaren líklega að taka við

Ian Holloway.

Ian Holloway.

Canon

Mynd: Getty Images

Ian Holloway hefur verið sagt upp störfum hjá Queen Park Rangers í Championship-deildinni.

QPR endaði 16. sæti Championship-deildarinnar á tímabilinu.

Það var ekki ásættanlegur árangur að mati eigandans Tony Fernandes. Holloway og Fernandes funduðu í dag og var niðurstaða fundarins sú að Holloway myndi víkja.
Hinn 55 ára gamli Holloway hefur stýrt QPR frá því í nóvember 2016. Hann stýrði liðinu einnig frá 2001 til 2006.

Líklegast þykir að Steve McClaren taki við liðinu. McClaren starfaði síðast hjá Maccabi Tel Aviv í Ísrael, liðinu sem sóknarmaðurinn Viðar Örn Kjartansson spilar fyrir.

Síðasta stjórastarf McClaren var hjá Derby. Þar áður vann hann hjá Newcastle United með afar slökum árangri.
Steve McClaren.

Steve McClaren.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.