Fotbolti.net
10.05.18 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Tindastóll fær markvörð frá Úrúgvæ (Staðfest)

Tindastóll fær markvörð frá Úrúgvæ (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Tindastóll hefur nælt í markvörð. Sá heitir Santiago Fernández Idiart og er fæddur í Maldonado í Úrúgvæ.

Santiago hefur verið að spila með C.F. Sant Rafael og spænsku D-deildinni í vetur. Hann hefur hins vegar ákveðið að verja sumrinu á Íslandi, nánar tiltekið á Sauðárkróki.

Brenton Muhammad hefur varið mark Tindastóls síðustu ár en hann verður ekki með liðinu í sumar.

Atli Dagur Stefánsson, fæddur 1999, varði mark liðsins í fyrsta leik í 2. deild, í <a href=\"http://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=252614\" target=\"_blank\">5-2 tapi gegn Gróttu</a>.
Næsti leikur Tindastóls í 2. deildinni er gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ á laugardaginn. Santiago gæti varið mark liðsins þar.

Sjá einnig:
Spá fyrirliða og þjálfara í 2. deild: 12. sæti
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.