10.05.19 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson
Celtic sendir Timothy Weah heim (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Timothy Weah, sóknarmaður PSG og sonur George Weah forseta Líberíu, hefur verið sendur aftur heim eftir að hafa verið lánaður til Celtic í janúar.
Weah spilaði mikið undir Brendan Rodgers en hefur fengið færri tækifæri eftir að Neil Lennon tók við.
Weah skoraði 4 mörk í 16 leikjum hjá Celtic og var deildarmeistari með félaginu. Hann missir af síðustu deildarleikjum tímabilsins, gegn Rangers og Hearts, og úrslitaleik bikarsins gegn Hearts 25. maí.
Ástæðan fyrir þessu er HM U20 landsliða sem hefst 23. maí. Weah tilkynnti þjálfurum sínum að hann ætlaði að keppa með bandaríska landsliðinu á mótinu.
„Stjórinn sagði að það væri best fyrir mig að pakka niður og fara heim," sagði Weah.
„Það var sannur heiður að spila fyrir þetta félag og er ég afar þakklátur Celtic fjölskyldunni fyrir að gefa mér þetta tækifæri. Ég mun aldrei gleyma ástinni sem ég fékk frá stuðningsmönnum.
„Ég veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér en ég vona að ég komi aftur hingað einn daginn. Ég mun sakna þess að heyra ykkur syngja nafn mitt og þetta frábæra lag sem þið bjugguð til fyrir mig."