10.05.19 - 18:01
Ívan Guðjón Baldursson
David Luiz framlengir til 2021 (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brasilíski varnarmaðurinn David Luiz er búinn að framlengja samning sinn við Chelsea um tvö ár, eða til sumarsins 2021.
Samningur Luiz hefði runnið út í sumar og bjuggust margir við því að hann myndi annað hvort framlengja um eitt ár eða yfirgefa félagið, enda nýorðinn 32 ára gamall.
Luiz hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Chelsea á tímabilinu og hefur Maurizio Sarri miklar mætur á honum. Hann er búinn að spila 48 leiki á tímabilinu og 246 í heildina.
„Ég er mjög ánægður með lífið hérna og er þakklátur fyrir nýjan samning. Ég elska þetta félag og er ennþá með sama metnað og þegar ég var ungur," sagði Luiz þegar hann skrifaði undir.
„Það þýðir mikið fyrir mig að komast í úrslitaleik í Evrópukeppni og að eiga ennþá möguleika á að enda í topp þremur. Ég mun halda áfram að gera mitt besta fyrir liðið."

Chelsea break their contract policy to give Luiz a new two-year deal. I'm not sure at all this would have happened if it wasn't for the threat of a transfer ban.
— Matt Law (@Matt_Law_DT) May 10, 2019