10.05.19 - 17:00
Arnar Daði Arnarsson
Júlíus Óli í Selfoss (Staðfest)

Mynd: Arnar Helgi Magnússon

Mynd: Arnar Helgi Magnússon
Selfoss í 2. deildinni hefur fengið til sín Júlíus Óla Stefánsson frá Augnabliki.
Júlíus sem er 21 árs stundar nám í Bandaríkjunum en er kominn heim í sumarfrí og hefur ákveðið að leika með Selfossi í sumar.

Hann lék 11 leiki með Augnabliki í deild og bikar á síðasta sumri en hann gengur í raðir Selfoss frá Breiðabliki.
Selfoss tapaði í 1. umferð 2. deildarinnar 2-1 á heimavelli gegn Vestra. Selfoss mætir Fjarðabyggð í 2. umferðinni á morgun og Júlíus Óli kominn með leikheimild með Selfyssingum og gæti því spilað sinn fyrsta leik á morgun.