Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 10. maí 2019 12:43
Elvar Geir Magnússon
Níu leikmenn sem gætu spilað sinn síðasta leik fyrir Man Utd
Það eru breytingar framundan á Old Trafford.
Það eru breytingar framundan á Old Trafford.
Mynd: Getty Images
Alexis Sanchez og Marcos Rojo.
Alexis Sanchez og Marcos Rojo.
Mynd: Getty Images
Manchester United leikur gegn Cardiff í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudag. Tímabilið hefur verið erfitt á Old Trafford og ljóst að liðið verður ekki þátttakandi í Meistaradeildinni á næsta tímabili.

En hvaða leikmenn gætu spilað sinn síðasta leik fyrir Manchester United á sunnudag? Mirror tók saman níu nöfn:

David de Gea
Viðræður um nýjan samning virðast hafa truflað spænska markvörðinn utan vallar. De Gea vill hærri laun en án Meistaradeildarpeningana gæti reynst erfitt fyrir United að verða við ósk hans.

Paul Pogba
Sögusagnirnar um að hann gæti farið til Real Madrid eru ekkert á leið burt.

Alexis Sanchez
Hann þarf að fá að spila til að geta leikið sinn síðasta leik á sunnudag! Það er best fyrir alla að hann færi sig um set. En hver er til í að taka á móti honum?

Juan Mata
Samningur han er að renna út og hann er hættur að hafa eins mikil áhrif á leiki og hann hafði. Möguleiki er samt á eins árs framlengingu.

Romelu Lukaku
Marcus Rashford er sóknarmaður númer eitt hjá Ole Gunnar Solskjær og sagt að Lukaku sé að horfa til ítölsku A-deildarinnar.

Marcos Rojo
Þolinmæðin gagnvart Argentínumanninum virðist á þrotum á Old Trafford.

Ander Herrera
Allt bendir til þess að Spánverjinn fari til Paris St-Germain í sumar.

Antonio Valencia
(Staðfest) - Hann leikur sinn síðasta leik fyrir United á sunnudag. En hvar mun hann spila á næsta tímabili?

Matteo Darmian
Já, hann er enn hjá United!
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner