10.05.19 - 09:49
Elvar Geir Magnússon
Phelan aðstoðar Solskjær áfram (Staðfest)

Mike Phelan og Solskjær hressir og kátir.

Mynd: Getty Images

Mike Phelan hefur verið staðfestur sem aðstoðarstjóri Manchester United næstu þrjú árin.
Phelan hefur verið hægri hönd Ole Gunnar Solskjær síðan hann tók við sem stjóri í desember.
Phelan, sem er 56 ára, var rekinn sem stjóri Hull City 2017 en hann var íþróttastjóri Central Coast Mariners í Ástralíu áður en hann svaraði kalli Solskjær.

Phelan þekkir hverja þúfu á Old Trafford en hann var aðstoðarmaður Sir Alex Ferguson 2008-2013.
„Manchester United hefur verið stór hluti af mínu lífi síðan ég kom til félagsins sem leikmaður 1989. Það er mér sannur heiður að halda nánum tengslum við félagið með því að gegna lykilhlutverki," segir Phelan.