Byrjunarlið Vals og ÍA: Schram snýr aftur á Hlíðarendaa

Frederik Schram byrjar í kvöld.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Frederik Schram byrjar í kvöld.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Núna klukkan 19:15 flautar Twana Khalid Ahmed til leiks á Hlíðarenda þar sem Valur og ÍA mætast í 6.umferð Bestu deildar karla.
Valur tapaði ljótt gegn FH í síðustu umferð og situr liðið í 8.sæti deildarinnar. ÍA vann KA nokkuð sannfærandi 3-0 í síðustu umferð en liðið situr fyrir leik kvöldsins í 10.sæti deildarinnr.
Srdjan Tufegdzic gerir markmannsbreytingu frá tapinu gegn FH í síðustu umferð. Frederik Schram byrjar í marki Vals en hann kom aftur til liðsins á dögunum. Stefán Þór þarf að sætta sig við að fá sér sæti á tréverkinu.
Jón Þór Hauksson gerir eina breytingu á liði sínu frá sigrinum gegn KA. Rúnar Már Sigurjónsson kemur inn í liðið og Guðfinnur Þór Leósson fær sér sæti á bekknum.
Byrjunarlið Valur
Frederik August Albrecht Schram, Markus Lund Nakkim, Bjarni Mark Antonsson, Aron Jóhannsson, Jónatan Ingi Jónsson, Tryggvi Hrafn Haraldsson, Hólmar Örn Eyjólfsson (fyrirliði), Lúkas Logi Heimisson, Marius Lundemo, Birkir Heimisson
Byrjunarlið ÍA
Hlynur Sævar Jónsson, Oliver Stefánsson, Haukur Andri Haraldsson, Albert Hafsteinsson, Viktor Jónsson, Erik Tobias Tangen Sandberg (fyrirliði), Rúnar Már S Sigurjónsson, Gísli Laxdal Unnarsson, Marko Vardic, Jón Gísli Eyland Gíslason




