08.10.26 - 17:59
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho um Man City-málið: Get eiginlega bara hlegið að þessu

Jose Mourinho

Mynd: EPA

Jose Mourinho

Mynd: EPA
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, sló á létta strengi þegar hann var spurður út í Manchester City-málið í viðtali við Corriere dello Sport.

TENGT EFNI
Man City hefur staðfest áfrýjun
Mourinho stýrði bæði Chelsea og Manchester United á tímabilinu sem brot Man City á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar ná til. Félagið var fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum í síðasta mánuði.
Málið er eitt það heitasta í fótboltanum um þessar mundir og var Mourinho spurður út í niðurstöðu óháðrar nefndar deildarinnar. Hann býst ekki við að því ljúki í bráð.
„Ég get eiginlega bara hlegið að þessu. Ég er kominn á sjötugsaldurinn og verð bara heppinn að vera enn á lífi þegar endanleg niðurstaða fæst í málið.“
„Nú verður dæmt í þessu og svo verður áfrýjað, þannig að ég verð orðinn áttræður þegar niðurstaðan liggur fyrir,“ sagði Mourinho.