Fotbolti.net
08.10.26 - 17:37
Brynjar Ingi Erluson

Eftirsóttur Brasilíumaður framlengir í Portúgal

Eftirsóttur Brasilíumaður framlengir í Portúgal
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski vængmaðurinn William Gomes hefur samþykkt nýjan samning við portúgölsku meistarana í Porto til ársins 2031. Fabrizio Romano greinir frá.
Gomes er tvítugur og átti stóran þátt í meistaratitli Porto á síðustu leiktíð. Hann var meðal eftirsóttustu leikmanna sumarsins en Porto hafnaði öllum tilboðum stórliðanna í hann.

Félagið var staðráðið í að halda Gomes og hefur nú framlengt samning hans til næstu fimm ára. Í honum er 100 milljóna evra riftunarákvæði sem setur Porto í sterka stöðu komi til sölu eftir tímabilið.

Gomes skoraði þrettán mörk og lagði upp tvö á síðustu leiktíð og hefur þegar komið að fjórum mörkum í upphafi þessarar.

Brasilíumaðurinn hefur leikið með yngri landsliðum þjóðarinnar en bíður enn eftir sínu fyrsta tækifæri með A-landsliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.