10.06.17 - 09:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ricardo Rodriguez í AC Milan (Staðfest)

Farinn til Mílanó.

Mynd: Getty Images

Farinn til Mílanó.

Mynd: Getty Images
AC Milan heldur áfram að styrkja sig. Þetta forna stórveldi hefur nú keypt bakvörðinn Ricardo Rodriguez frá Wolfsburg.
Hinn 24 ára gamli Rodriguez, sem á ófáa landsleiki með Sviss, hefur krotað undir fjögurra ára samning við Milan.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem Milan fær til sín í sumar, en áður höfðu Mateo Musacchio og Franck Kessie skrifað undir.
Kessie kom til liðsins frá Atalanta og Mussachio, sem er argentískur miðvörður, kom frá Villareal á Spáni.
Kínverskir eigendur tóku á dögunum við eignarhaldi hjá AC Milan og nú á sér stað umbreyting á leikmannahópnum. Kínversku eigendurnir ætla að gera Milan aftur sigursælt!
Talið er að félagið ætli að bæta við sig sóknarmanni á næstu dögum. Diego Costa hefur verið bendlaður við liðið og sömu sögu er að segja af Andrea Belotti, leikmanni Torino.

#ACMilan comunica di aver acquisito le prestazioni sportive di Ricardo Rodriguez, contratto fino al 30 giugno 2021#welcomeRodriguez pic.twitter.com/oWuQK2Ig1k
— AC Milan (@acmilan) June 8, 2017