Fotbolti.net
10.06.17 - 10:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Schalke ræður 31 árs gamlan þjálfara (Staðfest)

Ungur í bransanum.

Ungur í bransanum.

Canon

Mynd: Getty Images

Schalke, eitt stærsta félagið í þýsku Bundesligunni, hefur ráðið hinn 31 árs gamla Domenico Tedesco sem nýjan þjálfara liðsins.

Hann tekur við starfinu hjá Schalke af Markus Weinzierl.
Á síðasta tímabili, stjórnaði Tedesco B-deildarliði FC Erzgebirge Aue í síðustu 11 leikjunum - það var hans fyrsta starf, þjálfarastarf, en honum tókst að bjarga liðinu frá falli.

Tedesco, sem er eins og áður segir aðeins 31 árs gamall, hefur nú skrifað undir tveggja ára samning við Schalke.

Schalke endaði í 10. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar á nýliðnu tímabili.

Tedesco er mikill vinur Julian Nagelsmann, sem er 29 ára gamall þjálfari Hoffenheim. Nagelsmann hefur náð góðum árangri með Hoffenheim og hefur m.a. verið orðaður við Bayern München.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.