10.06.18 - 14:46
Ívan Guðjón Baldursson
Coleman tekinn við Hebei China Fortune (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hebei China Fortune er búið að staðfesta að Chris Coleman hefur verið ráðinn til að taka við af Manuel Pellegrini.
Pellegrini yfirgaf kínverska félagið til að taka við West Ham í maí og ákvað stjórnin að ráða annan stjóra með reynslu úr enska boltanum.

Coleman hefur meðal annars stýrt Fulham, Real Sociedad og velska landsliðinu en hann var við stjórnvölinn hjá Sunderland á síðasta tímabili.
Mikils var vænst af Coleman eftir að hafa gert frábæra hluti við stjórn velska landsliðsins en gengi Sunderland undir hans stjórn var skelfilegt og féll liðið niður í C-deildina.