Fotbolti.net
10.06.18 - 10:01
Ívan Guðjón Baldursson

Fekir gekk illa í læknisskoðun

Fekir gekk illa í læknisskoðun
Canon

Mynd: Getty Images

Powerade
Slúður dagsins er á sínum stað í boði Powerade. Fréttirnar eru teknar saman af <i>BBC</i>.


Mario Götze, 26 ára sóknartengiliður Borussia Dortmund, neitar að útiloka félagaskipti til Liverpool þar sem hann myndi endursameinast Jurgen Klopp. (DAZN)

Lyon hætti við að selja Nabil Fekir, 24, til Liverpool eftir að enska félagið lækkaði tilboðið sitt í sóknarmanninn. Enska félagið lækkaði tilboðið því læknisskoðunin þótti ekki nógu sannfærandi. (Mirror)

Liverpool ætlar að bjóða 15 milljónir punda í Nick Pope, 26 ára markvörð Burnley. (Sun)

Leicester er að íhuga að láta Claude Puel fara og ráða Brendan Rodgers í staðinn. (Sun)

Real Madrid er búið að bjóða Cristiano Ronaldo, 33, nýjan risasamning þar sem Portúgalinn fengi rétt tæpar 30 milljónir á ári. Ronaldo er talinn vilja enn hærri laun. (Cadena COPE)

Xherdan Shaqiri, 26, vill ekki tjá sig um framtíðina og útilokar ekki félagaskipti til Liverpool. (Metro)

Arsenal nálgast Lucas Torreira, 22 ára miðjumann Sampdoria. Torreira átti frábært tímabil í Serie A, fer með Úrúgvæ á HM og er falur fyrir 20 milljónir. (Calciomercato Sampdoria)

Manchester City er sterklega orðað við Jean Michael Seri, 26 ára miðjumann Nice. City vildi Jorginho en verðmiðinn á honum er talinn of hár. (Mirror)

Manchester United er orðað við Sergej Milinkovic-Savic, 23 ára serbneskan miðjumann Lazio. Hann er talinn gríðarlegt efni en gæti kostað vel yfir 60 milljónir. Hann ætlar að ákveða framtíðina eftir HM. (Daily Mail)

Tottenham er að undirbúa tilboð í Jack Grealish, 22 ára miðjumann Aston Villa. (Sky Sports)

Wolves er að krækja í Imrane Bouchema, 18 ára varnarmann sem kemur á frjálsri sölu. (L\'Equipe)

West Brom er búið að bjóða 10 milljónir í Bobby Reid, 25 ára sóknarmann Bristol, og Romaine Sawyers, 26 ára miðjumann Brentford. (Telegraph)

Mohamed Salah hefur ekki fyrirgefið Sergio Ramos fyrir að hafa meitt sig í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. (Marca)

Marcel Brands, yfirmaður knattspyrnumála hjá Everton, segist fylla bjartsýni þegar hann horfir til framtíðarinnar. Hann segir unglingastarfið eiga eftir að skila byrjunarliðsmönnum í náinni framtíð. (Liverpool Echo)

Mikil pressa er á starfsmönnum Aston Villa eftir að hafa mistekist að krækja sér í úrvalsdeildarsæti. Félagið þarf að lækka launareikninginn um 15 milljónir. (Telegraph)

John Stones telur að gagnrýni á ensku vörnina eigi ekki rétt á sér eftir að England hélt hreinu gegn Brasilíu og Þýskalandi í æfingaleikjum. (Observer)
Fekir gekk illa í læknisskoðun
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.