Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 10. júní 2019 23:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jonjoe Kenny lánaður til Schalke (Staðfest)
Kenny ásamt Gylfa.
Kenny ásamt Gylfa.
Mynd: Getty Images
Jonjoe Kenny, varnarmaður Everton, er genginn til liðs við Schalke í þýsku Bundesliga á eins árs lánssamningi.

Kenny lék þrettán leiki á leiktíðinni en fékk fá tækifæri eftir að Seamus Coleman kom að fullum krafti til baka inn í lið Everton.

David Wagner, fyrrum stjóri Huddersfield, er nýtekinn við liði Schalke,

Kenny sagði í viðtali í dag að hann væri spenntur fyrir komandi leiktíð og kitlaði að sýna hæfileika sína í jafn stóru félagi og Schalke er.

Ademola Lookman, samherji Kenny hjá Everton, lék með RB Leipzig á láni og er Leipzig sagt hafa áhuga á því að kaupa Lookman.
Athugasemdir
banner
banner