Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 10. júní 2021 11:09
Ívan Guðjón Baldursson
Maguire æfir með hópnum
Mynd: EPA
Harry Maguire, miðvörður enska landsliðsins og fyrirliði Manchester United, er byrjaður að æfa aftur með landsliðshópnum.

Maguire hefur verið frá vegna meiðsla undanfarnar vikur ásamt Jordan Henderson, fyrirliða Liverpool. Fyrirliðarnir eru báðir tæpir fyrir fyrsta leik Evrópumótsins en ættu að vera í fullu fjöri strax í næstu umferð.

Stuðningsmenn enska landsliðsins fagna þessum tíðindum enda væri mikill skellur að missa Maguire á ögurstundu.

Útlit er fyrir að Henderson verði klár í slaginn á undan Maguire en búist er við að báðir þessir leikmenn komi mikið við sögu í sumar.

Maguire mun mynda spennandi miðvarðapar með John Stones í sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner