Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 10. júní 2021 19:28
Victor Pálsson
Sjáðu ömurlega aukaspyrnu Ronaldo í gær
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo komst á blað í gær er Portúgal vann Ísrael með fjórum mörkum gegn engu.

Um var að ræða vináttulandsleik en Ronaldo skoraði annað mark Portúgals sem spilar á EM sem hefst á morgun.

Ronaldo fékk tækifæri á að skora fyrr í leiknum er Portúgal fékk aukaspyrnu á ákjósanlegum stað fyrir utan teig.

Framherjinn steig upp að venju en spyrna hans var gríðarlega slök og fór langt framhjá markinu.

Ronaldo hefur skorað úr ófáum aukaspyrnum á ferlinum en ljóst er að þessi fer ekki í neinar sögubækur.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner