Fotbolti.net
10.06.25 - 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gyökeres sagður bálreiður út í Sporting

Gyökeres sagður bálreiður út í Sporting
Canon

Mynd: EPA

Viktor Gyökeres, skotmark Manchester United, er sagður bálreiður út í Sporting eftir að portúgalska félagið gaf í skyn að það myndi ekki standa við heiðursmannasamkomulagið við hann sem fólst í því að leyfa honum að fara fyrir 59 milljónir punda í sumar.

Í samningi sænska framherjans er riftunarákvæði upp á 84 milljónir punda en hann gerði samkomulag við félagið um að vera áfram á síðasta ári gegn því að hann fengi að fara ef 59 milljóna punda kæmi í sumar.

Record í Portúgal segir að eftir fyrirspurnir frá öðrum félögum þá hafi forsetinn Federico Varandas hækkað verðmiðann upp í 68 milljónir punda.
Gyökeres er alls ekki sáttur við hækkunina, sé ósáttur við að ekki sé staðið við heiðursmannasamkomulagið.

Man Utd hefur hafið viðræður við Sporting um kaup á þessari 27 ára markavél. Gyökeres hefur skorað 97 mörk í 102 leikjum fyrir Sporting. Hann er einnig á óskalista Arsenal.

Gyökeres vill fara til stærra félags í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.