10.06.25 - 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu punghöggið sem Þróttarar voru mjög ósáttir við

Venni var ekki sáttur við þetta atvik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Oumar Diouck.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Venni var ekki sáttur við þetta atvik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eftir rúmlega klukkutíma í leik Þróttar gegn Njarðvíkur fékk Oumar Diouck, leikmaður Njarðvíkur, tiltal frá Twana Khalid Ahmed, dómara leiksins.
Í spilaranum hér að neðan sést Baldur Hannes Stefánsson, fyrirliði Þróttara, dekka Diouck stíft í aðdraganda hornspyrnu, falla svo til jarðar og halda fyrir klofið. Diouck var á þessum tímapunkti kominn með gult spjald og fékk einungis tiltal frá Twana.
Þróttarar vildu sjá eitthvað meira en ekki neitt dæmt á Njarðvíkinginn. „Hvernig kemst hann upp með þetta?" heyrðist stuttu seinna í útsendingunni. Atvikið úr útsendingu Livey má sjá í spilaranum hér að neðan.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 2 Njarðvík
Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, hafði eftirfarandi að segja um atvikið í leiknum:
„Svo er auðvitað kostulegt atvik þegar fyrirliðinn minn er sleginn á viðkvæman stað hérna inn í teig, (Njarðvíkingurinn) er á gulu spjaldi. Aðstoðardómarinn sá þetta, dómarinn ræðir við hann, sá þetta. Svo labbar dómarinn bara aftur inn í teig og áfram með leikinn. Það er auðvitað kostulegt," sagði Venni.