Góðan og gleðilegan miðvikudag. HM hefst á morgun og það styttist í að sumarglugginn opnar. Hér er allt helsta slúðrið en Manchester United kemur mikið við sögu í pakka dagsins.
Ljóst er að sóknarmaðurinn Marcus Rashford (28) verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili en félagið er ekki tilbúið að borga þær 26 milljónir punda sem þarf til að fá hann alfarið. Rashford snýr því aftur til Manchester United eftir að hafa verið á láni hjá Börsungum. (Marca)
Barcelona var tilbúið að borga 13 milljónir punda fyrir Rashford en United samþykkti það ekki. Barcelona ákvað að kaupa Anthony Gordon (25) frekar en Rashford vegna þess að hann sinnir meiri varnarvinnu og er yngri. (Marca)
Barcelona hefur gert Bernardo Silva (31) samningstilboð en hann er falur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Manchester City rann út. Þá er Barcelona tilbúið að borga um 100 milljónir punda til að fá argentínska sóknarmanninn Julian Alvarez (26) frá Atletico Madrid til að fylla skarð Robert Lewandowski. (Daily Mail)
Atletico Madrid vonast til þess að vinna samkeppni við Barcelona og Real Madrid um Bernardo Silva. (Marca)
Real Madrid hefur áhuga á ítalska varnarmanninum Riccardo Calafiori (24) hjá Arsenal. Calafiori lék undir stjórn Jose Mourinho hjá Roma. (Sky Sports)
Tottenham íhugar að gera tilboð í brasilíska varnarmanninn Gleison Bremer (29) hjá Juventus en hann gæti fyllt skarð argentínska landsliðsmannsins Cristian Romero (28) í hjarta varnarinnar. (Tuttosport)
Manchester United hefur ekki áhuga á að fá Romero frá Tottenham en hefur hinsvegar áhuga á Lewis Hall (21), hinum fjölhæfa varnarmanni Newcastle. (TeamTalk)
Sir Jim Ratcliffe meðeigandi Manchester United er tilbúinn að ganga að launakröfum Elliot Anderson (23) til að fá hann til Manchester United. (Mirror)
Manchester City er enn líklegast til að fá Anderson þrátt fyrir tilraunir nágrannana. (Star)
Mourinho, sem er að taka við Real Madrid, hefur áhuga á að fá portúgalska miðjumanninn Mateus Fernandes (21) frá West Ham. Chelsea hefur einnig áhuga. (AS)
Manchester United er einnig að horfa til Fernandes. West Ham er með um 80 milljóna punda verðmiða á honum en liggur ekkert á að selja hann. (Sky Sports)
Manchester United íhugar óvænt að reyna að fá markvörðinn Karl Darlow (35) sem er að renna út á samningi hjá Leeds. Tyrkneski markvörðurinn Altay Bayndir (28) er á leið frá Old Trafford. (TalkSport)
Fulham hefur áhuga á að kaupa nígeríska miðjumanninn Samuel Chukwueze (27) frá AC Milan en hann var á láni á Craven Cottage. Fulham reynir að semja við ítalska félagið um lægri upphæð. (Gazzetta dello Sport)
Fulham veltir því fyrir sér hvort félagið eigi að virkja 8 milljóna punda riftunarákvæði stjórans Kieran McKenna hjá Ipswich. Hann er efstur á blaði yfir mögulega kosti í stað Marco Silva. (TalkSport)
Leicester er í viðræðum við Russell Martin, fyrrum stjóra Rangers og Southampton. Leicester féll í ensku C-deildina á liðnu tímabili. (Leicester Mercury)



