Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 10. júní 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Kieron Dyer kominn í starf sem aðalþjálfari
Mynd: EPA
Kieron Dyer, fyrrum miðjumaður Newcastle United og enska landsliðsins, er kominn í sitt fyrsta starf sem aðalþjálfari.

Dyer er tekinn við hjá Southend United sem leikur í National League deildinni, þeirri fimmtu efstu á Englandi.

Dyer er 47 ára gamall og hefur starfað sem yngriflokkaþjálfari hjá Ipswich Town og verið partur af þjálfarateyminu hjá Chesterfield á þjálfaraferlinum.

Dyer gerir tveggja ára samning við Southend með möguleika á þriðja árinu.


Slapp
banner
banner