Fotbolti.net
10.07.17 - 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Borja Valero farinn til Inter (Staðfest)

Borja Valero farinn til Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fiorentina hefur tilkynnt það að félagið hafi selt spænska miðjumanninn Borja Valero til keppinauta sinna í ítölsku úrvalsdeildinni, Inter Milan.

Talið er að kaupverðið sé í kringum 7 milljónir evra.
Valero fór í læknisskoðun hjá Inter í morgun og nú hafa kaupin á honum verið staðfest.

„ACF Fiorentina tilkynnir að félagið hafi selt Borja Valero Iglesias til F.C. Internazionale Milano,\" sagði í yfirlýsingu frá Fiorentina.

„Fiorentina þakkar Borja fyrir fimm stórkostleg ár.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.