10.07.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Camacho keyptur til Wolfsburg (Staðfest)

Ignacio Camacho er farinn í þýska boltann.

Mynd: Getty Images

Wolfsburg hefur keypt varnarsinnaða miðjumanninn Ignacio Camacho frá spænska liðinu Malaga.
Hinn 27 ára gamli Camacho kostar Wolfsburg 15 milljónir evra, en hann er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning.

Camacho er búinn að vera í rúm sex tímabil hjá Malaga. Þar áður spilaði hann hjá Atletico Madrid, en nú fer hann til Þýskalands.
„Ignacio kemur til með að styrkja miðjuna hjá okkur frekar,\" sagði Andries Jonker, þjálfari Wolfsburg.
Síðasta tímabil var mikið vonbrigðartímabil fyrir Wolfsburg, liðið þurfti að fara í umspil um sæti í þýsku úrvalsdeildinni og þar unnu þeir að lokum. Það hafa verið miklar breytingar á leikmannahópnum í sumar og félagið stefnir auðvitað á betri árangur.

The Wolves have signed Ignacio #Camacho from @MalagaCF_en. Welcome, Ignacio!🐺💚 pic.twitter.com/VgETxrV0MZ
— VfL Wolfsburg EN (@VfLWolfsburg_EN) July 8, 2017