10.07.17 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Ruddy í markið hjá Wolves (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Wolves hefur fengið markvörðinn John Ruddy í sínar raðir en hann er þar með nýr liðsfélagi Jóns Daða Böðvarssonar. Hinn þrítugi Ruddy skrifaði undir tveggja ára samning við Wolves en hann yfirgaf Norwich fyrr í sumar eftir sjö ára dvöl þar.
Carl Ikeme, markvörður Wolves, greindist með hvítblæði í síðustu viku en félagið sagði í yfirlýsingu í dag að Ruddy hafi verið á óskalistanum í allt sumar.
„Þetta eru blendnar tilfinningar fyrir mig. Það er gott að vera hér en kringmstæðurnar gætu verið betri,\" sagði Ruddy.
„Eftir að hafa spilað oft gegn Carl undanfarin ár þá veit ég að hann er góður markvöðrur. Það hefði verið frábært fyrir félagið ef við hefðum getað barist um markvarðarstöðuna og náð því besta fram í hvor öðrum.\"
„Núna fer fótboltinn í farþegasætið hjá Carl og hugsanir allra eru hjá honum.\"
Ruddy er góður vinur Bjarna Þórs Viðarssonar, miðjumanns FH, en þeir voru saman á mála hjá Everton á sínum tíma.
„Hann kom líka til Íslands fyrir tveimur árum og gjörsamlega elskaði það. Hann tók gullna hringinn og svo fórum við í miðnæturgolf hjá Keili. Hann talar ekki um annað síðan þá og vill ólmur koma aftur í golf,“ sagði Bjarni í viðtali á Fótbolta.net í vor.