10.07.17 - 22:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þór fær króatískan miðjumann (Staðfest)

Stipe Barac er kominn til Þórs.

Mynd: Thorsport.is

Stipe Barac er kominn til Þórs.

Mynd: Thorsport.is
Þór frá Akureyri hefur fengið króatíska miðjumanninn Stipe Barac fyrir átökin í seinni hlutanum í Inkasso-deildinni.
Þetta kemur fram á kaffið.is og thorsport.is.

Samningur var undirritaður við leikmanninn í félagsheimili Þórs í kvöld.
Barac er miðjumaður og hefur spilað með liðum í Króatíu og Bosníu-Herzegóvínu. Hann kemur til Þórs frá NK Hrvace í Króatíu.
Hann verður löglegur í fyrsta leik Þórs í seinni umferð Inkasso-deildarinnar þegar liðið fær Fylki í heimsókn á Þórsvöllinn laugardaginn 15. júlí, en sama dag opnar félagsskiptaglugginn.
Þór er sem stendur í fjórða sæti Inkasso-deildarinnar með 15 stig. Liðið mætir á morgun Leikni F., sem er í botnbaráttu.