Fotbolti.net
10.07.18 - 11:30
Magnús Már Einarsson

Fernando Torres semur í Japan (Staðfest)

Fernando Torres semur í Japan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fernando Torres hefur samið við japanska félagið Sagan Tosu en þetta staðfesti hann í dag.
Hinn 34 ára gamli Torres kemur frá uppeldisfélagi sínu Atletico Madrid en samningur hans þar rann út í sumar.

Atletico vildi ekki framlengja samninginn við Torres og því þurfti hann að róa á önnur mið.

Torres skoraði 126 mörk í 314 leikjum á Englandi á sínum tíma með Chelsea og Liverpool. Þar af skoraði hann 81 mark í 142 leikjum með Liverpool.

Torres hefur einnig leikið með AC Milan á ferli sínum en hann hefur orðið bæði heims og evrópumeistari með spænska landsliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.