Fotbolti.net
10.07.18 - 14:28
Elvar Geir Magnússon

Torreira kominn til Arsenal - Verður númer 11 (Staðfest)

Torreira er mættur til Arsenal.

Torreira er mættur til Arsenal.

Canon

Mynd: Arsenal

Úrúgvæski miðjumaðurinn Lucas Torreira er formlega genginn í raðir Arsenal og fær hann treyju númer ellefu.

Torreira er 22 ára en hann var búinn að gera munnlegt samkomulag við Arsenal fyrir nokkrum vikum. Eftir að Úrúgvæ féll úr leik á HM í Rússlandi flaug hann svo til London og gekk frá málum.
Talið er að kaupverðið sé í kringum 22 milljónir punda en Arsenal kaupir hann frá Sampdoria á Ítalíu.

Unai Emery, stjóri Arsenal, hefur verið að styrkja leikmannahóp sinn en fyrr í sumar fékk hann Stephan Lichtsteiner, Bernd Leno og Sokratis Papastathopoulos.

Emery lagði áherslu á að styrkja miðsvæðið eftir að Arsenal hefur misst Jack Wilshere og Santi Cazorla.

Mörgum leikmönnum frá Suður-Ameríku hefur mistekist að fóta sig í ensku úrvalsdeildinni og Ricardo Torreira, pabbi Lucas Torreira, segir að menn séu búnir undir allt annað umhverfi.

Pabbinn segir í viðtali við úrúgvæska útvarpsstöð að fólk í kringum leikmanninn, þar á meðal hann sjálfur, muni gera allt sem það getur til að hjálpa honum að aðlagast.

„Hann mun fá mikinn stuðning og félagsskap. Hann verður ekki einn. Það er stórt tækifæri að fara til Englands,\" segir pabbinn. „Það er erfitt að ná tungumálinu, aðlagast menningunni og hefðum í London án þess að tapa okkar. En það er prógramm tilbúið fyrir Lucas.\"

The wait is over… it\'s #TimeForTorreira 👍

Welcome to Arsenal, @LTorreira34 🔴 pic.twitter.com/wnUDYuDMeS

— Arsenal FC (@Arsenal) July 10, 2018
Torreira í leik með Úrúgvæ. Hann sýndi fín tilþrif á HM.

Torreira í leik með Úrúgvæ. Hann sýndi fín tilþrif á HM.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.