Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 10. júlí 2019 07:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Verðmætasti leikmaður NBA deildarinnar í fyrra með áhugaverða markmannstakta
Mynd: Getty Images
James Harden, leikmaður Houston Rockets, í NBA deildinni var í heimsókn á Englandi í sumarfríi sínu. Harden var valinn verðmætasti leikmaður deildarinnar árið 2018.

Hann er stuðningsmaður Arsenal og kíkti á Emirates völlinn í gær.

Harden er skráður 196 cm á hæð og er með langar hendur sem hentar vel í markvarðarstöðuna. Í gær var hann í marki og gerði sig líklegan í að verja skot.

Harden sveiflaði löngum höndum sínum og náði að taka skotmanninn úr jafnvægi sem setti boltann framhjá markinu.

Þá er Harden ekki sérstaklega þekktur fyrir varnarleik sinn og grínuðust stuðningsmenn Arsenal að hann gæti komið til liðsins þar sem liðið væri ekkert mikið í því að verjast.






Athugasemdir
banner