Brynjar Björn ósáttur með vítadóminn - „Það er hægt að sjá það mjög vel á vídeóinu"


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Leiknir tapaði 1-0 fyrir Gróttu í kvöld en úrslitin réðust á vafasömum vítadóm. Brynjar Björn Gunnarsson þjálfari Leiknis var ekki sáttur með ákörðun Þórðar dómara að dæma vítið.
„Við vorum ekki sáttir með það. Fyrsta lagi fannst mér við hafa aðeins yfirhöndina í leiknum almennt. Án þess að skapa okkur of mikið af færum. Við fengum ágætis möguleika í einni sókn, þar sem við eigum skot í slá, skot í varnarmann og svo skot yfir í kjölfarið. Einhverja örfáa möguleika í fyrri hálfleik líka. Lykil augnablikið í leiknum er þegar það er dæmt víti. Eiki (Eiríkur Örn Beck) er á leiðinni upp í að skalla bolta, hann er kominn í loftið, fær hendur í bakið á sér og lendir á Gróttu manni. Það er hægt að sjá það mjög vel á vídeóinu. Fyrir utan það er Gróttu leikmaðurinn að bakka, þannig ég sé ekki alveg hvernig hægt er að dæma víti. Það er náttúrulega aukaspyrna fyrst áður en vítið er dæmt. Það var lykil atriði, og dómarinn átti stórt hlutverk í því, en að öðru leiti fannst mér við þurfa gera betur sóknarlega. Við vorum með ágætis tök á þessu varnarlega, unnum boltann snemma, komum honum í leik. Við bara náðum ekki að ógna mikið inn í teig Gróttu manna," sagði Brynjar.
Eiríkur sem fékk á sig vítið fær seinna meir einnig rautt spjald. Það virtist koma flestum á óvart að Þórður skildi draga fram þennan lit á spjaldinu.
„Ég er ekki búinn að sjá það aftur. Hann vildi meina að Eiki hafi farið upp í hné á Gróttu manninum. Ég ætla ekki að segja til um það hvort það sé rétt eða rangt, það allavega leit ekki þannig út á hliðarlínunni. Það er ekkert meira um það að segja, Þórður er ofan í þessu. Mér fannst það allavega skrítið við fyrstu sýn," sagði Brynjar.
Þetta er annar heimaleikurinn í röð án sigurs þar sem síðasti leikur var mjög óheppilegt jafntefli gegn Völsung.
„Þetta er bara einn leikur á tímabilinu, af 22. Þannig að tapa einum leik er ekkert mál þannig séð. Það er hvernig þú bregst við því eftir helgi og í næstu viku, vissulega eru þetta báðir heima leikir og við hefðum viljað fá meira út úr þeim. Aftur við munum bara horfa á þetta sem einn leik á tímabilinu, svo þurfum við bara að horfa á næsta leik sem við undirbúum okkur undir," sagði Brynjar.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.



