10.08.16 - 15:52
Elvar Geir Magnússon
Ashley Williams til Everton (Staðfest)

Williams er kominn í blátt.

Mynd: Getty Images

Williams er kominn í blátt.

Mynd: Getty Images
Everton hefur keypt varnarmanninn Ashley Williams frá Swansea. Kaupverð er ekki gefið upp en það er talið vera um 12 milljónir punda.
Þessi 31 árs velski miðvörður er þriðji leikmaðurinn sem Ronald Koeman fær til sín fyrir komandi tímabili. Áður hefur hann krækt í senegalska miðjumanninn Idrissa Gueye og markvörðinn Maarten Stekelenburg.

Þá eru viðræður um kaup á Yannick Bolasie frá Crystal Palace og Lamine Kone, miðvörð Sunderland.
Ljóst var að Koeman þarf að bæta varnarleik Everton en með því að fá Williams fær hann einnig mikinn leiðtoga í hóp sinn þar sem hann var fyrirliði Swansea.
Williams var átta ár hjá Swansea og lék yfir 300 leiki fyrir félagið eftir að hann kom frá Stockport í mars 2008.