10.08.16 - 12:11
Arnar Daði Arnarsson
Gary Martin í Lilleström (Staðfest)

Gary Martin í treyju Lilleström.

Mynd: Ståle Lindblad - lsk.no

Gary Martin í treyju Lilleström.

Mynd: Ståle Lindblad - lsk.no
Sóknarmaðurinn, Gary Martin hefur skrifað undir lánssamning við norska úrvalsdeildarlið Lilleström. Þetta var tilkynnt á heimasíðu félagsins í morgun.
Gary fer á lán til Noregs frá Víking R. en hann gekk til liðs við Reykjavíkur-Víkinga fyrir tímabilið. Hann klárar tímabilið í Noregi en Lilleström er með forgangsrétt á Gary Marin eftir tímabilið.

Þjálfari Lilleström, Rúnar Kristinsson þekkir vel til Gary en hann þjálfaði kauða hjá KR áður en Rúnar tók við Lilleström.
Hinn 25 ára gamli Gary kom fyrst til Íslands árið 2010 þegar hann gekk til liðs við ÍA. Tveimur árum síðar fór Gary í KR og fyrr á þessu ári keypti Víkingur hann í sínar raðir.
Lilleström er í 12. sæti í norsku úrvalsdeildinni en Rúnar Kristinsson þjálfar liðið og Sigurður Ragnar Eyjólfsson er aðstoðarþjálfari.
Árni Vilhjálmsson er einnig á mála hjá Lilleström en hann fór til Breiðabliks á láni á dögunum.