Fotbolti.net
10.08.16 - 10:45
Elvar Geir Magnússon

Ranieri skrifaði undir (Staðfest) - Morgan glaður

Ranieri gerði nýjan fjögurra ára samning.

Ranieri gerði nýjan fjögurra ára samning.

Canon

Mynd: Getty Images

Claudio Ranieri hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við Leicester, félagið sem hann gerði óvænt að Englandsmeisturum síðasta tímabil.

Þessi 64 ára Ítali fetar í fótspor leikmannana Kasper Schmeichel, Wes Morgan og Jamie Vardy sem allir framlengdu við félagið.
Morgan er fyrirliði Leicester og er hæstánægður með nýjan samning Ranieri.

„Þetta eru hreint frábærar fréttir. Allir strákarnir standa með honum alla leið og hann átti stóran þátt í velgengni síðasta tímabils,\" segir Morgan.

Ranieri er að fara að sigla inn í nýtt tímabil með Leicester en titilvörnin hefst gegn Hull á laugardaginn.

„Krafturinn sem er hjá þessu félagi; frá eigendum og starfsfólki til leikmanna og stuðningsmanna, er einstakur,\" segir Ranieri.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.