Fotbolti.net
10.08.17 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bristol City fær kantmann frá Svíþjóð (Staðfest)

Niclas Eliasson ásamt stjóra Bristol City, Lee Johnson.

Niclas Eliasson ásamt stjóra Bristol City, Lee Johnson.

Canon

Mynd: Heimasíða Bristol City

Íslendingaliðið Bristol City hefur fjárfest í sænska kantmanninum Niclas Eliasson frá öðru Íslendingaliði, IFK Norrköping.

Hinn 21 árs gamli Eliasson skrifaði undir þriggja ára samning við Bristol með möguleika á framlengingu um eitt ár.
Hann hefur verið að spila vel með Norrköping, en þar eru fjórir Íslendingar samningsbundnir. Varnarmaðurinn Jón Guðni Fjóluson er í lykihlutverki og þá spila Guðmundur Þórarinsson, Arnór Sigurðsson og Alfons Sampsted einnig með liðinu.

Nú er hann mættur til Bristol, en þar er íslenski landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon á meðal varnarmanna.

„Við gátum ekki hafnað þessu tækifæri, að kaupa leikmann sem við teljum að geti verið mjög sérstakur í Championship-deildinni,\" sagði Lee Johnson, stjóri Bristol, við heimasíðu félagsins.

„Það verður spennandi að sjá hvort hann muni taka frammistöðu sína úr sænsku úrvalsdeildinni í Championship.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.