Fotbolti.net
10.08.19 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Martin Skrtel til Atalanta (Staðfest)

Martin Skrtel er mættur til Ítalíu

Martin Skrtel er mættur til Ítalíu

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Atalanta er búið að landa slóvakíska varnarmanninum Martin Skrtel á frjálsri sölu.
Skrtel er 34 ára gamall en hann gerði frábæra hluti með Liverpool frá 2008-2016 áður en hann fór til tyrkneska liðsins Fenerbahce. Hann hefur einnig spilað fyrir Trencin og Zenit.

Hann varð samningslaus í sumar og var því frjálst að semja við önnur félög en hann er mættur til Atalanta.

Hann gerði eins árs samning við félagið eftir að hafa staðist læknisskoðun en félagið vildi fá mann með reynslu í Evrópu inn í hópinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.