Heimild: Mbl.is
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, er í viðtali við Víði Sigurðsson á mbl.is þar sem hann ræðir meðal annars um þá gagnrýni sem landsliðið fékk í Þjóðadeildinni.
„Þetta voru skin og skúrir en þetta var erfiður tími og þjálfarinn, Erik Hamren, fann mesta hitann af því og fékk mikla gagnrýni. Eftir þetta, á þessu ári, eftir að við fengum okkar leikmenn aftur til baka og í betra leikformi, og þeir sjálfir náðu áttum og þéttu raðirnar, hafa úrslitin verið mjög góð," segir Guðni.
„Mér finnst eins og liðið sé á mjög góðum stað núna til að gera atlögu að því að komast í þriðju úrslitakeppnina á stórmóti í röð."
Guðni segir að Hamren landsliðsþjálfari hafi fengið mestu gagnrýnina en sýnt styrk.
„Hann er með mikla reynslu sem þjálfari, bæði hjá félagsliðum og svo hjá sænska landsliðinu þar sem hann náði góðum árangri, og það hefur örugglega hjálpað honum mikið á þessum kafla. Mér fannst hann sýna mikinn og sterkan karakter, hann tók mestalla ábyrgðina á sig og fékk alla gagnrýnina, og þannig er það svo sem oftast með þjálfara, en hann gerði það bara og var ekkert að kvarta eða kveina yfir því. Hann hélt sinni einbeitingu á það sem hann trúði á og ég er mjög ánægður með hvernig þeir vinna saman, hann, Freyr og allt þjálfarateymið," segir Guðni.
„Ég held að núna séum við að uppskera samkvæmt þessu, þannig að ég er mjög ánægður með hvernig hann fór í gegnum þetta erfiða tímabil. Það var alls ekki auðvelt, menn eru metnaðarfullir og það er erfitt fyrir hvern sem er að fá harkalega gagnrýni í fjölmiðlum en það fylgir þessu starfi."
Með því að smella hér má lesa viðtalið við Guðna í heild sinni.
Í kvöld mætast Albanía og Ísland í undankeppni EM, leikurinn hefst klukkan 18:45 og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.
Athugasemdir