Fotbolti.net
10.09.26 - 10:30
Elvar Geir Magnússon

Er Afturelding virkilega sigurstranglegri?

Magnús Már Einarsson og Ólafur Ingi Skúlason, þjálfarar liðanna.

Magnús Már Einarsson og Ólafur Ingi Skúlason, þjálfarar liðanna.

Canon

Mynd: Mjólkurbikarinn

Mjólkurbikarinn
Afturelding og Breiðablik mætast í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á Laugardalsvelli annað kvöld. Þó Afturelding sé deild neðar eru margir sem hafa tröllatrú á að liðið hampi bikarnum.

Í skoðanakönnun sem var á forsíðu spá 65% því að Afturelding hampi bikarnum en 35% því að Breiðablik vinni.

Breiðablik er án sigurs í sex leikjum í Bestu deildinni, vann síðast í júlí, og hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir spilamennsku sína. Afturelding vann Lengjudeildina en eru Mosfellingar virkilega sigurstranglegri fyrir þennan leik?
Magnús Már: Segir sig sjálft á hverjum pressan er
TENGT EFNI

Magnús Már: Segir sig sjálft á hverjum pressan er

Mynd: Fótbolti.net

Ekki ef rýnt er í veðbanka. Epicbet er með stuðulinn 3,05 á að Afturelding vinni í venjulegum leiktíma. 2,18 er á að Breiðablik vinni í venjulegum leiktíma en 3,78 á að farið verði í framlengingu.

Þá er stuðullinn 2,40 á að Afturelding muni hampa bikarnum en 1,60 á að Breiðablik standi uppi sem sigurvegari.

„Það er engin værukærð eða vanmat hjá okkur. Við erum mjög hungraðir í þennan bikar, peppaðir og spenntir fyrir föstudeginum. Afturelding er afburðarlið í Lengjudeildinni og er á Bestu-deildar kaliberi," sagði Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, í viðtali í gær.

„Við komum með mikið sjálfstraust inn í leikinn og höfum mikla trú á því sem við erum að gera. Þetta verður hörkuleikur, Blikar eru með gott lið, góðan þjálfara og góða leikmenn," sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar.
Afturelding vann Lengjudeildina.

Afturelding vann Lengjudeildina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Höskuldur Gunnlaugsson.

Höskuldur Gunnlaugsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Horfðu á upphitunarþátt Mjólkurbikarsins

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.