Fotbolti.net
10.10.16 - 16:53
Magnús Már Einarsson

Donni tekinn við Þór/KA (Staðfest)

Frá undirskriftinni nú rétt í þessu.

Frá undirskriftinni nú rétt í þessu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Aron Elvar Finnsson

Kvennaboltinn
Halldór Jón Sigurðsson, Donni, hefur verið ráðinn þjálfari hjá Þór/KA í Pepsi-deild kvenna. Hann skrifaði undir þriggja ára samning.

Þetta var staðfest á fréttamannafundi í Hamri, félagsheimili Þórs, nú rétt í þessu.

Jóhann Kristinn Gunnarsson hætti með Þór/KA á dögunum eftir fimm ár í starfi. Undir stjórn hans varð Þór/KA Íslandsmeistari árið 2012. Í sumar endaði liðið í 4. sæti í Pepsi-deildinni.
Donni hefur undanfarið tvö ár þjálfað meistaraflokk karla hjá Þór í 1. deildinni.

„Það er vegna fjölskylduástæðna að við sjáum okkur knúin að flytja frá Akureyri á þessum tímapunkti,\" sagði Donni þegar hann tilkynnti að hann væri hættur með Þór á dögunum. Það kemur því á óvart að hann taki núna við Þór/KA.

Donni kom Tindastóli upp úr 2. deild karla árið 2011 og stýrði liðinu í kjölfarið í tvö ár í 1. deildinni. Hann var síðan aðstoðarþjálfari hjá Val árið 2014 áður en hann tók við Þór.

Viðtal við Donna er væntanlegt inn á Fótbolta.net síðar í dag.
Jóhann Kristinn Gunnarsson hætti með Þór/KA eftir tímabilið.

Jóhann Kristinn Gunnarsson hætti með Þór/KA eftir tímabilið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.