Fotbolti.net
10.10.16 - 18:36
Magnús Már Einarsson

Guðlaugur Baldurs tekinn við Keflavík (Staðfest)

Eysteinn Hauksson, Jón G. Benediktsson og Guðlaugur Baldursson.

Eysteinn Hauksson, Jón G. Benediktsson og Guðlaugur Baldursson.

Canon

Mynd: Keflavík

Guðlaugur Baldursson hefur verið ráðinn þjálfari Keflavíkur í Inkasso-deildinni. Á föstudag varð ljóst að Guðlaugur myndi ekki halda áfram sem aðstoðarþjálfari FH en hann hefur nú skrifað undir þriggja ára samning við Keflavík.

Guðlaugur tekur við liðinu af Þorvaldi Örlygssyni sem hætti í síðustu viku.
Fréttatilkynning frá Keflavík:
Guðlaugur Baldursson er nýráðinn þjálfari meistaraflokks karla Keflavíkur til næstu þriggja ára.

Guðlaugur hefur undanfarin fimm ár verið aðstoðarþjálfari hjá Íslandsmeisturum FH ásamt því að stýra afreksþjálfun hjá þeim. Árin 2005-2006 var hann með meistaraflokk karla ÍBV og 2008-2011 með lið ÍR.

Knattspyrnudeild Keflavíkur fagnar komu Guðlaugs og telur hann henta afar vel í það verkefni sem framundan er við að koma Keflavík aftur í fremstu röð. Reynsla og þekking Guðlaugs mun ennfremur nýtast gríðarlega vel í þeirri stefnumótun sem félagið hefur sett af stað undir forystu Margrétar Sanders hjá Strategíu.

Guðlaugi til aðstoðar verður Eysteinn Húni Hauksson sem kom til starfa hjá knattspyrnudeildinni síðastliðið haust og þekkir afar vel til félagsins sem fyrrum leikmaður og aðstoðarþjálfari.

F.h. Knattspyrnudeildar Keflavíkur
Jón G. Benediktsson
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.