Bolton er búið að krækja í írska miðjumanninn Stephen Ireland á samningi út tímabilið.
Ireland er 32 ára gamall og hefur verið samningslaus síðan hann yfirgaf Stoke í sumar.
Ireland gerði garðinn frægan með Manchester City en hefur einnig leikið fyrir Aston Villa og Newcastle, auk Stoke.
Bolton er með 15 stig eftir 12 fyrstu umferðir tímabilsins í Championship deildinni.
Athugasemdir