10.11.12 - 12:51
Hafliði Breiðfjörð
James Beattie til Accrington Stanley (Staðfest)

James Beattie er kominn í fjórðu efstu deild Englands.

Mynd: Getty Images

Framherjinn James Beattie er genginn í raðir enska 2. deildarliðsins Accrington Stanley en enska 2. deildin er fjórða efsta deildin þar í landi.
Beattie er 34 ára gamall fyrrverandi framherji enska landsliðsins. Hann var leystur undan samningi hjá Sheffield Unitd í sumar og var því félagslaus. Hann þekkir til Leam Richardson stjóra Accrington Stanley því þeir spiluðu saman hjá Blackburn á sínum tíma.
,,Leam er kominn þarna inn sem stjóri og bað mig að koma líka og spila nokkra leiki og taka að mér smá þjálfunarstarf,\" sagði Beattie við BBC Radio Lancashire.
Beattie spilaði á sínum fimm landsleiki fyrir England. Hann semur við Accrington Stanley fram í janúar. Hann hóf ferilinn hjá Blackburn en fór til Southampton árið 1998. Þar skoraði hann 76 mörk í 233 leikjum. Eftir það lék hann með Everton, Sheffield United, Stoke, Rangers, Blackpool og Sheffield United að nýju. Hann skoraði ekkert mark með þremur síðustu liðunum frá 2010-2012 en spilaði 38 leiki.

Heimild: BBC